Congo African Grey (Mona) – SELD!

260.000 kr.

Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir. Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og ávexti. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html

Mona er 7 ára gömul handmötuð CAG, fædd í F&F. Fuglinum fylgir stórt blátt Chiquita Playtop búr, leikstandur, ferðabúr og nokkuð af leikdóti. Mona er er rólyndur fugl, mikill blaðrari með mikinn persónuleika. Hún er aðhyllist konum frekar en körlum. Hún tók upp á því að reyta af sér bringufjaðrir fyrir nokkru síðan (ekki þó dúnfjaðrirnar). Það gæti hætt með betri fóðrun og meiri athygli en þó ekki víst. Hún er til sölu vegna breyttra fjölskylduaðstæðna eiganda. Skemmtilegur fugl!
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 260.000 kr með búri og dóti. - VISA raðgreiðslur til allt að 36 mánaða í boði! - SELD!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg