522.100 kr.

SKU: 04491 Flokkur:

Platín krókódílageddan (Atractosteus spatula 'Platinum') finnst á Ohio og Mississippi vatnasvæðinu í suðurhluta  Ameríku. Þetta er einfari og mesti ránfiskur sem hentar eingöngu með stærri og grimmari fiskum. Getur líka gengið í torfu þar sem allir eru svipað stórir. Hann er allsérstæður með tannfylltan kjaftinn sem er vel til þess fallinn að gripa bráðina á sundi. Hann er afar snar í snúningum og eigandinn þarf því að passa vel hvar hann hefur fingurna. Búrið þarf líka að vera vel lokað. Verður allt að 200 cm langur í náttúrunni en mun minni í búrum og þarf því mjög mikið pláss! Mjög sjaldgæft litarafbrigði!
Tegund: Alligator Gar - Platinum S
Stærð: 10-12 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg