Anubias ‘Chili’ – in Pot
Anubias 'Chili' er fallegur sjaldséður dverg harðblöðungur sérræktaður í Hollandi. Þetta er með minnstu Anubias plöntum, og blöðin ekki stærri en fingurnögl. Svipar til Anubias barteri 'Mini Coin' nema að blöðin eru minni og oddmjó en ekki kringlótt. Líkjast chílepiparaldin í lögun. Hægvaxta og auðveld. Hún vill litla birtu (0,3 W/L). Best er að láta hana vaxa á steini eða rót og ekki má hylja jarðstöngulinn með botnlagi, annars rotnar hann. Myndar þéttan hnoðra og má auðveldlega skipta í tvennt og færa til. Hentar best í örbúrum en einnig í forgrunni stærri búra. Verður um 3-10+ cm há. Seld í potti. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/anubias_barteri_var__nana.html
Tegund: Anubias 'Chili'
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Leiðbeiningamyndskeið: Anubias 'Petite'
Plant info
Type: | Rhizomatous | |
---|---|---|
Origin: | Cultivar | ![]() |
Growth rate: | Slow | ![]() |
Height: | 3 - 10+ | ![]() |
Light demand: | Low | ![]() |
CO2 : | Low | ![]() |
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|