Aqua Medic Plankton Light Reactor II
Aqua Medic Plankton Light Reactor II er þörungaræktunareining. Plankton Light Reactor II tekur um 5 lítra. Þetta er einfalt kerfi til framleiðslu á svifi sem hluta af náttúrulegri fæðukeðju. Í Plankton Light Reactor II eru örþörungar ræktaðir með hjálp ljóss, áburðar og koldíoxíðs sem finnst í loftinu. Þessa örþörunga má gefa beint mörgum hryggleysingjum sem sía fæðu úr vatni, eða nota til ræktunar á dýrasvifi (zooplankton). Innbyggð 10 W LED-lýsing veitir nægilegt ljós til að tryggja góða fjölgun. Ef aðgengi næringarefna er nægilegt getur lífmassi þörunganna allt að fjórfaldast á 24 klukkustundum. Plankton Light Reactor II er búinn tveimur tengingum fyrir stöðugt loft og CO₂ innflæði Ef þörf er á miklu magni af svifi er hægt að auka CO₂-styrkinn með pH-stýringu. Í lokinu er festing fyrir pH-nema. Við venjulegar aðstæður er þó ekki þörf á viðbótarinnsprautun CO₂.
Til að gera auðveldara taka út hluta af svifinu er einingin búin slöngu með skömmtunarklemmu og festingu á loki ílátsins. Hægt er að rækta bæði salt- og ferskvatnsþörunga, svo og plöntusvif (phytoplankton) og dýrasvif (zooplankton). Þá má einnig nota eininguna til að rækja artemíu.
Við mælum með því að nota Mistral 100 loftdælu (seld sér) eða stærri loftdælur.
Innihald: Fullbúin klakstöð (tekur um 1 L) með festiplötu.
Lengd: 56 cm
Þvermál: 15 cm
Slöngutengi: 2 x 4/6 mm
Lýsing: LED ljós 10W
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|








