Avian Spirulina 125g
Avian Spirulina fóðurbætiefnið er bráðnauðsynlegt öllum páfagaukum, dúfum og smáfuglum. Þetta eru blágrænþörungar sem eru ríkir að hollum prótínum, kolvetnum, amínósýrum og steinefnum. Það sem gerir spírúlínu svo öflugt er samsetning þess og samspil efna. 100% hreint spírúlínaduft. Magnar upp náttúrlega fjaðurliti, styrkir fjaðrabyggingu, eflir sjúkdómsmótstöðu og dregur úr steinefnaskorti. Styrkir ónæmiskerfið og viðheldur góðu jafnvægi á iðraflórunni. Bætir varp fugla til muna. Hægir á myglumyndun í ávöxtum, og fyrirbyggir sveppamyndun í loftvegum og meltingarfærum. Fyrir ávaxtafugla er best að sáldra duftinu yfir ávöxtinn. Mæliskeið fylgir.
Magn: 125g
Skammtastærð: 1% af þyngd ávaxtar eða eggjafóðurs (10g/kg).
Samsetning: Hráprótín 59%, hráfita og olíur 7%, hrátrefjar 4%; hráaska 6,5%, kalk 0,01%, fosfór 0,01%; natrín 0,01%; magnesíum 0,02%