5.190 kr.

SKU: 39613 Flokkur:

Skegggraninn (Scleromystax barbatus) er friðsamur og fallegur fiskur í samfélagsbúri. Hann er náskyldur Corydoras grönunum en ílengri og stærri og hængurinn fær litla brodda meðfram snoppunni. Hann er einstaklega fallegur og mjög eftirsóttur og mun fjörugri en Corydorasar. Honum lyndir vel við aðra rólega fiska og finnst reyndar voða gaman að vera í hópi. Hann duglegur við að þrífa upp og éta fóðurleifar á búrbotninum. Honum þykir ormar og maðkar lostæti. Hann kemur af Rio Guapi, Rio Capivari og Rio Inbomirim vatnsvæðunum í Brasilíu og verður um 9,5 cm langur. Hængurinn er grennri og litmeiri og fær gyllta blesu með aldrinum sem hrygnan fær ekki. Sýrustig pH 5,5-7, hiti 20-24°C. Þolir illa háan hita vegna lágrar súrefnismettunar.
Tegund: Bearded/Checkerboard/Banded/Filigree Cory M
Stærð: 2,5-3,5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni).

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg