Betta Formula 50g

1.890 kr.

SKU: NLS-10004/BETTA-50 Flokkur:

Byltingakennt fóður frá New Life Spectrum. Einfaldlega vandaðasta og besta fiskafóðrið í heiminum! Aðeins er notast við hágæðahráefni á borð við krill-átu og síld, frekar en hefðbundið fiskimjöl eins og flestir aðrir framleiðendur, til að tryggja hámarksnæringu og hreysti. Hvort sem um er að ræða samfélagsbúr eða sérhæft siklíðubúr uppfyllir New Life Spectrum þarfir allra fiska - kjötæta, grænmetisæta og alæta. Fjórir náttúrulegir litaukar í fóðrinu, m.a. spirúlína þörungur, tryggja að fiskurinn skarti fegurstu liti og viðbættar fiskiolíur og hvítlaukur tryggja bestu heilsu og sjúkdómsviðnám. Engin hormón eru notuð í fóðrinu. Reyndu og þú sérð mun innan tíu daga!!

Spectrum Betta Formula er fyrir allar labýrintufiska ss. bardagafiska. Bettur þurfa próteinríkt fóður til að vaxa og dafna. En það er ekki nóg eitt og sér. Þeir þurfa einnig margvísleg bæti- og snefilefni og grænfóður sem þeir fá ekki úr hefðbundnu þurrfóðri eða frosnum blóðormum. New Life Spectrum Betta Formula hefur að geyma allt sem vaxandi og heilbrigð betta (bardagafiskur) þarf!

Stærð og lögun: 1 mm hálf-fljótandi kögglar.
Magn: 50 g.

Innihald: Íshafsrækja (krill), síld, hveiti, þörungamjöl, soja, fiskiolía, amínósýrur, betakarótín, spirulína, hvítlaukur, A-vítamín, D3-vítamín, B12-vítamín, ribóflavín, níacín, fólínsýra, kalsíum pantóþenat, pýrídoxín hýdróklóríð, þíamín, bíótín, E-vítamín, C-vítamín, kólín klóríð, kóbalt súlfat, koparsúlfat, járnsúlfat, mangansúlfat, rotvarnarefni. 
Samsetning (1 kg): Hráprótín 34%, hráfita 5%, hrátrefjar 5%, aska 9%, raki 8%, A-vítamín 8000 IU, D-vítamín 450 IU, E-vítamín 200 IU.

 

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg