Black-headed Caique (Ringó) – SELDUR!
Svarthöfða kaíkinn (Pionites melanocephalus) nýtur mikilla vinsælda, enda litfagur og bráðgreindur miðfugl. Hann hefur þokkalega talgetu og mjög auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er húsbóndahollur fugl sem hefur mikla leikþörf og þarf mikið kel. Nokkuð hljóður en getur gefið frá sér hávær köll ef honum leiðist. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, eggjafóður og auðvitað grænmeti og sérstaklega ávexti. Þessi fugl er fágætur á Íslandi. Hann er blanda af hunangspáfa (Lory) og senegal í hegðun og atferli.
Hann Ringó er um 12 ára gamall. Þetta er kyngreindur strákur sem hefur verið taminn. Hann lætur þá kláppa sér sem hann treystir en getur látið heyrast í sér allmikið til að fá athygli. Skrækina er hægt að hafa hemil á með réttu uppeldi - og maður verður nú að fá að láta aðeins heyrast í sér! Honum fylgir notað búr á standi og falleg ferðataska. Ringó virðist vera með lakari sjón á öðru auganu eftir veikindi fyrir nokkrum árum en það eru engin sjáanleg lýti. Mjög fallegur fugl! Ringó hefur verið á lífræntræktuðu stórfuglafóðri um hríð en var áður á Harrisons þurrfóðri.
Stærð: 23 cm.
Lífaldur: 30-40 ár.
Framboð: taminn karlfugl með búri og ferðatösku. - SELDUR!
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|

