4.990 kr.

SKU: 09684 Flokkur:

Blehers regnboginn (Chilatherina bleheri) er afar skrautlegur regnbogafiskur frá Nýju Gíneu. Þetta er fenjamýrarfiskur sem getur orðið býsna laglegur á fengitímanum. Hængurinn er litmeiri og með lengri ugga en hrygnan. Þetta er hópfiskur sem hrygnir auðveldlega í heimabúrum og dafnar best með gróðri. Fallegt gróðurbúr með 20 regnbogafiskum er ægifögur sjón. Þessum lyndir vel við aðra rólega fiska og er auðveldur byrjunarfiskur. Hængurinn verður 10-12 cm en hrygnan 8-9 cm. Kemur úr alkalísku vatni pH 7-8. Þetta er hoppari þ.a. búrið þarf að vera vel lokað. Lífaldur 10-12 ár.
Tegund: Bleher's Rainbowfish M/L
Stærð: 5-6 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg