Blue-fronted Amazon (Kári) – SELDUR!
Blábrýndi amasoninn (Amazona aestiva aestiva) er mjög vinsæll félagi, enda litfagur og bráðgreindur stórfugl. Hann hefur mikla talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er félagslyndur og lífsglaður fugl sem hefur mikla leikþörf. Frekar hávær, einkum kvölds og morgna. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og mikið af grænmeti og ávöxtum. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/blue-fronted_amazon.html
Hann Kári er 12 ára gamall, vel taminn og kyngreindur karlfugl sem var fluttur inn frá Bretlandi. Hann er líflegur eins og aðrir af sömu tegund. Hann talar og röflar töluvert. Kári er til sölu vegna breyttra aðstæðna eiganda. Þetta er stórfínn fugl og skemmtilegur og kann ýmis "tricks" ss. high-five. Honum finnst gaman að kúra hjá þeim sem hann treystir og láta klappa sér. Hefur hænst undanfarið að kvenfólki en var áður hrifinn af karlmönnum. Er á Harrison's þurrfóðri en líka stórfuglafóðri. Mjög laglegur og fríður fugl. Honum fylgir stórt gyllt Gabber-búr á hjólum og standur fra Avian Adventures. Búrið er opnanlegt að ofan.
Stærð: 37 cm.
Lífaldur: 70-100 ár.
Verð: 250.000 kr ásamt búri og standi. - SELDUR!
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|