Blue-fronted Amazon (Sigurrós) – SELD

250.000 kr.

Ekki til á lager

Blábrýndi amasoninn (Amazona aestiva aestiva) er mjög vinsæll félagi, enda litfagur og bráðgreindur stórfugl. Hann hefur
mikla talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er
félagslyndur og lífsglaður fugl sem hefur mikla leikþörf. Frekar hávær, einkum kvölds og morgna. Þarf nóg til að
dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu
þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og mikið af grænmeti og ávöxtum. Pantanir í síma 699 3344. Nánari
upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/blue-fronted_amazon.html

Hún Sigurrós er 4ra ára gamall handmataður kvenfugl sem var flutt inn af einkaaðila. Hún er kyngreind og henni fylgir notað Ferplast Max 11 búr (mynd að ofan) og nokkur leikföng. Sigurrós er blíð og góð, kyssir mann en er nokkuð heimakær. Hún bitur yfirleitt ekki og var upphaflega til sölu vegna ofnæmis hjá barni.
Stærð: 37 cm.
Lífaldur: 70-100 ár.
Verð: 250.000 kr ásamt búri - SELD!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg