Blue & Gold Macaw (Díva) – SELD
Bláguli arinn (Ara ararauna) nýtur
mikilla
vinsælda, enda stór og fjörmikill stríðnispúki. Hann er bráðgreindur og
hefur
heilmikla talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er
ákveðinn fugl með mikla leikþörf. Hann er nokkuð hljóður
en getur gefið frá sér
mjög hávær öskur ef honum leiðist eða er vanræktur. Þarf nóg til að
dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu
þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og auðvitað grænmeti,
ávexti og margs konar mannmat. Pantanir í síma 699 3344. Nánari
upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/blue___gold_macaw.html

Hún Díva verður
4ra
ára í mars og er handmötuð, innflutt frá Hollandi. Hún talar mikið og hefur ýmsa skemmtilega takta. Hún kemur til allra, hvort heldur
karlmanna eða kvenna, og geta allir klappað henni. Díva Echo er
til sölu af fjárhagsaðstæðum. Henni fylgir stórt og mikið grátt Hacienda Playtop búr frá Montana Cages. Þá
fylgir hellingur af leikdóti. Hún hefur verið kyngreind og fylgir DNA-skjal með henni.
Stærð: 86 cm.
Lífaldur: 70-100 ár.
Verð: 430.000 kr ásamt búri og dóti - SELD!
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|





