Blue & Gold Macaw (Ringó) – SELDUR!

420.000 kr.

Bláguli arinn (Ara ararauna) nýtur mikilla vinsælda, enda stór og fjörmikill stríðnispúki. Hann er bráðgreindur og hefur heilmikla talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er ákveðinn fugl með mikla leikþörf. Hann er nokkuð hljóður en getur gefið frá sér mjög hávær öskur ef honum leiðist eða er vanræktur. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og auðvitað grænmeti, ávexti og margs konar mannmat. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/blue___gold_macaw.html

Ringó er 3ja ára gamall handmataður arnpáfi innfluttur frá Danmörku. Hann er glæsilegur fugl, stór og stæltur, og talar töluvert. Honum fylgir stórt Montana Denver hornbúr. Ljúfur fugl sem þarfnast þjálfunar. Getur látið í sér heyrast ef hann fær ekki athygli! Er á Harrison's þurrfóðri og elskar hnetur!.

Stærð: 86 cm.
Lífaldur: 70-100 ár.
Verð: 420.000 kr ásamt nýlegu búri. VISA raðgreiðslur í boði til allt að 3ja ára.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg