Bushveld Rain Frog ML
Bushveld regnfroskurinn (Breviceps adspersus) er sérkennilegur froskur frá S-Afríku. Þetta er feitlaginn stutttrýnisfroskur með einkennandi samanrekið andlit líkt og boxer hundur. Hann er fótstuttur og blæs sig upp þegar honum er ógnað. Hann finnst víða á gresjum og grefur sig gjarnan niður í jörðina eða sandinn og bíður þess að rigni. Þá kemur hann út í ætisleit. Hann étur allt sem á tönn festir, einkum engisprettur, maðka, mölflugur og þess háttar. Best er að hafa djúpan sandbotn í búrinu. Sandurinn ætti að vera þurr öðru megin í búrinu en rakur hinum megin og aðgengi að hreinu vatni. Þetta eru næturdýr eins og aðrir froskar. Verður um 6cm langur, kvendýrið er stærra en karldýrið. Þetta er fallega ljótur froskur!

Tegund: Bushveld/Common Rain Frog L
Stærð: 5 cm.
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 2-4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|



