Cardinal – Blue Eye L
Bláaugnakardínálinn (Ostorhinchus compressus) er mjög fallegur bláeygður skrautfiskur í kórallabúri. Hann er nokkuð harðgerður og auðveldur og reef-safe. Hann er bestur stakur eða í pari. Þetta eru munnklekjarar, hængurinn sér um hrognin. Það hefur tekist að fjölga honum í búrum. Finnst í A-Indlandshafi og V-Kyrrahafi umhverfis Malasíu. Verður um 12 cm langur.
Stærð: large (stór)
Afgreiðslutími: 2-4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|