Ceratophrys sp. Fantasy ‘Green Phase’ M

25.390 kr.

SKU: ANAPA1302M Flokkur:

Þrílitaði Pacman froskurinn (Ceratophrys sp. Fantasy 'Green Phase') er blendingur af tveim pacman hornafroskategundum frá S-Ameríku. Það er mjög auðvelt að hugsa um hann sem gæludýr, enda flatmagar hann bara og bíður eftir næsta munnbita. Hann hefur gríðarlega matalyst og étur allt sem að kjafti kemur, jafnvel þótt það sé stærra en hann ræður við að gleypa. Hann vill vera í röku umhverfi (60-70% raki) með aðgang að hreinu vatni í grunnri skál. Botnlag má vera mold, gróf en slétt möl, börkur eða mosi. Vill hafa felustaði ss. steina eða viðarbúta. Getur orðið nokkuð langlífir. Nærast á skordýrum ss. mjölormum, möðkum og þess háttar, en etur líka fiska og músarunga. Ekki er þó gott að gefa þeim og mikið kjötmeti. Það getur leitt til blindu. Taka einnig vandað þurrfóður ss. JurassiDiet Frog & Newt og fóðurtöflur. Kvendýrið verður töluvert stærra (14 cm) en karldýrið (11 cm). Eru virkari á nóttunni en daginn. Hika ekki við að stökkva á bráðina og geta bitið býsna fast. Þeir hafa nokkra beinbrodda í munninum sem virka eins og tennur. Mannshöndin er þar ekki undanskilin. Geta orðið 8-10 ára gamlir í búrum. Heppileg búrstærð er um 40-200 lítra eftir stærð. Blása sig upp ef þeir verða hræddir.


Tegund: 
Tricolour Fantasy Frog M
Stærð: 5-6 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Umönnunarleiðbeiningar.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg