Congo African Grey (Amor) – SELDUR!

235.000 kr.

Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir. Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og ávexti.

Amor er 22 mánaða gamall handmataður og kyngreindur CAG, fæddur á Íslandi. Fuglinum fylgir fagurblátt Chiquita Playtop búr og vínrautt Poquita ferðabúr frá Avian Adventures (sjá að ofan) og líka hellingur af dóti. Amor er skemmtilegur fugl með mikinn persónuleika. Hann er góður jafnt við karla og konur og talar töluvert. Hann er til sölu vegna breyttra aðstæðna. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 235.000 kr með búri og ferðabúri - SELDUR!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg