Congo African Grey (Artemis) – SELD

250.000 kr.

Ekki til á lager

Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur
fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð
orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir.
Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann
verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að
dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu
þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og
ávexti.

Artemis er
15 mánaða gömul handmötuð og kyngreind CAG, fædd í F&F. Fuglinum
fylgir gyllt Gabber búr á hjólum, grátt Poquita ferðabúr og Parrot Playstand standur frá Avian Adventures (sjá að ofan) og töluvert að skemmtilegu dóti. Artemis er rólyndur blaðrari og hefur mikinn persónuleika. Hún er góð jafnt við karla og konur. Hún er til sölu vegna breyttra aðstæðna. Nánari
upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 250.000 kr með búri og ferðabúri - SELD!!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg