Congo African Grey (Bíbert) – SELDUR!
Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir. Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og ávexti. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html
Hann Bíbert er 18 ára gamall handmataður grápáfi (fæddur í mars 2005) fluttur inn frá Hollandi. Skemmtilegur og fallegur fugl sem þarfnast nýs heimilis. Hann blaðrar nokkuð og er hrifnari af karlmönnum en konum. Honum fylgir stórt stofubúr sem er orðið nokkuð lúið. Til sölu vegna breyttra aðstæðna eiganda.
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 250.000 kr með búri (gömlu). VISA raðgreiðslur í boði til 3ja ára
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|