Congo African Grey (Emma) – SELD!
Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir. Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og ávexti. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html
Emma er 11 ára gömul handmötuð CAG, flutt inn frá Englandi. Fuglinum fylgir grátt Mediana Playtop búr án kornahlífa, ferðabúr og Parrot Playstand leikstandur (sjá myndir) og e-ð af leikdóti. Emma er er rólyndur fugl, mikill blaðrari með mikinn persónuleika. Hún er aðhyllist konum frekar en körlum. Hún er til sölu vegna breyttra aðstæðna eiganda. Skemmtilegur fugl!
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 190.000 kr með búri, ferðabúri, leikstandi og dóti - TILBOÐSVERÐ! - SELD!
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|