Congo African Grey (Loki) – SELDUR!

280.000 kr.

Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir. Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og ávexti. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html

Loki er 6-7 ára gamall handmataður kyngreindur CAG, fæddur og uppalinn á Suðurlandi. Þetta er mjög skemmtilegur fugl sem tekur karla yfirleitt fram yfir konur. Loki er mikill sprelligosi, étur Harrisons fóður, fræfóður, hnetur ofl. Loki er til sölu vegna breyttra fjölskylduaðstæðna. Honum fylgir stórt búr svipað og á myndinni (Nema að það er dýpra og ekki á hjólum), lítið ferðabúr og Parrot Playstand fuglastandur.

Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 280.000 kr með búri, ferðabúri, leikstandi og dóti.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg