Congo African Grey (Loki) – SELDUR

240.000 kr.

Ekki til á lager

Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir. Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og ávexti.

Loki er 1 1/2 árs handmataður CAG, fæddur á Suðurlandi. Þetta er kyngreindur karlfugl. Fuglinum fylgir grátt Brazil búr frá Safari Select (sjá að ofan) og fuglastandur frá Avian Adventures, ásamt töluvert af dóti. Loki talar töluvert orðið er einungis til sölu vegna veikinda eiganda. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 240.000 kr með búri og standi - SELDUR!!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg