Congo African Grey (Magnús) – SELDUR!
Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir. Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og ávexti. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html
Magnús er 9 ára handmataður CAG, fluttur inn frá Hollandi. Fuglinum fylgir grátt Haiti búr frá Montana Cages (sjá að ofan), ásamt smávegis af dóti og ferðabúr. Magnús er líkast til karlfugl (hefur ekki verið kyngreindur) en mikill talfugl og enn þá meiri persónuleiki. Hann er fljótur að læra ný orð og hljóð og hlær hressilega. Magnús er skýr og yfirvegaður og er hrifnastur af karlmönnum. Hann er til sölu vegna tímaleysis eiganda.
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 260.000 kr með búri og ferðabúri - SELDUR!
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|