Congo African Grey Pair (Kobbi og Kata) – SELD!

360.000 kr.

Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir. Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og ávexti. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html

Hjonin Kobbi og Kata eru um 9 ára gömul og flutt inn frá Bretlandi. Þau kynntust á Íslandi og eru mjög samrýmd og óaðskiljanleg. Þau eru ótamin og verpandi par - hafa átt tvo unga. Líta bæði vel út og hafa góða matarlyst - éta lífrænt ræktað stórfugafóður og alls kyns ávexti og grænmeti. Hafa líka étið Harrisons High Potency þurrfóðrið og pálmahnetur. Láta lítið fyrir sig fara þegar mannfólk sér til og eru einstaklega hljóðlát.

Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.

Verð: 360.000kr parið. - SELD

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg