Congo African Grey (Rósa) – SELD!

190.000 kr.

Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir. Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og ávexti. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html

Rósa er 12-13 ára taminn kyngreindur CAG, flutt inn frá Bretlandi. Þetta er ljúfur fugl sem er taminn að hluta. Hún hefur átt 5 unga hérlendis. Henni fylgir ekki búr. Rósa er í stórgóðu formi og hentar vel til varps eða sem gæludýr.
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 190.000 kr - SELD!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg