Congo African Grey (Spike) – SELDUR!

280.000 kr.

Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir. Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og ávexti. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html

Spike er 9 ára handmataður CAG, fluttur inn frá Hollandi. Fuglinum fylgir notað blátt Chiquita Playtop búr frá Avian Adventures (sjá að ofan), ásamt töluvert af dóti, og Poquita Avian Hotel ferðabúr. Spike er afbragðsgóður talfugl og kjaftar á honum hver tuskan. Hann er hallari undir körlum en konum og er mikill karakter. Hann er til sölu vegna breyttra aðstæðna. Nánari upplýsingar: http://www.youtube.com/watch?v=YBQGkRPVdxE
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 280.000 kr með búri, ferðabúri og dóti - SELDUR!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg