Congo African Grey (Tóbías) – SELDUR!
Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir. Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og ávexti.
Tóbías er 4ra ára handmataður CAG, fluttur inn frá Hollandi. Fuglinum fylgir grátt Brazil búr frá Montana Cages (sjá að ofan), ferðabúr, standur ásamt töluvert af dóti. Tóbías er góður talfugl og góður við flesta, sem við hann vilja tala, en sérstaklega konur. Hann hefur verið á Harrisons undnafarið og lítur mjög vel út. Hann er einungis til sölu vegna breyttra fjölskylduaðstæðna en hann hefur verið á sama heimili frá því að hann kom til landsins. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 270.000 kr með búri, aukabúri, standi og leikdóti - SELDUR!
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|