1.290 kr.

SKU: 44073 Flokkur:

Ropgúraminn (Trichopsis vittata) er gullfalleg smágúramítegund. Hængurinn er spengilegri en hrygnan og litmeiri. Hann er sífellt að gera sig til við hrygnuna og býr oft til flothreiður til að hrygna í. Hann getur verið nokkuð aðgangsharður við hrygnuna. Hentar best í pari eða nokkur pör saman. Má ekki vera nörturum þ.e. fiskum sem gætu bitið í ugga og sporða. Þetta er almennt mjög róleg og smávaxin tegund sem passar mjög vel í samfélagsbúri með rólegum fiskum og í gróðurmiklum búrum. Finnst á neðri hluta Mekong vatnasvæðisins. Verður um 6-7 cm. Hitastig 22-28°C. Villtir!
Tegund: Croaking Gourami M - Wild.
Stærð: 3-4 cm

Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
 

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg