Crossband Chocolate Gourami M – Wild

2.790 kr.

SKU: 40013 Flokkur:

Breiðbands súkkulaðigúraminn (Sphaerichthys selatanensis) er falleg gúramítegund frá Borneó í Indónesíu. Hann er einna minnstur af súkkulaðigúrömunum og verður aðeins 5 cm langur. Hængurinn er spengilegri en hrygnan og litsterkari. Hann er sífellt að gera sig til við hrygnuna og býr oft til flothreiður til að hrygna í. Hann getur verið nokkuð aðgangsharður við hrygnuna. Hentar best í pari eða nokkur pör saman. Má ekki vera nörturum þ.e. fiskum sem gætu bitið í ugga og sporða. Þetta er almennt róleg tegund. Getur gengið í samfélagsbúri með rólegum fiskum. Villtir! Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/chocolate_gourami.html
Tegund: Crossband Chocolate Gourami M - Wild
Stærð: 3-4 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Sphaerichthys selatanensis - Keresztsávos csokoládégurámi - Akvarista  Lexikon

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg