Crustacean Formula 50g

3.350 kr.

SKU: CRUST-50 Flokkar: ,

Byltingakennt fóður frá New Life Spectrum. Einfaldlega vandaðasta og besta fiskafóðrið í heiminum! Aðeins er notast við hágæðahráefni á borð við krill-átu og síld, frekar en hefðbundið fiskimjöl eins og flestir aðrir framleiðendur, til að tryggja hámarksnæringu og hreysti. Hvort sem um er að ræða samfélagsbúr eða sérhæft siklíðubúr uppfyllir New Life Spectrum þarfir allra fiska - kjötæta, grænmetisæta og alæta. Fjórir náttúrulegir litaukar í fóðrinu, m.a. spirúlína þörungur, tryggja að fiskurinn skarti fegurstu liti og viðbættar fiskiolíur og hvítlaukur tryggja bestu heilsu og sjúkdómsviðnám. Engin hormón eru notuð í fóðrinu. Reyndu og þú sérð mun innan tíu daga!!

Spectrum Crustacean Formula er sérfóður fyrir krabbadýr og rækjur. Inniheldur auka kalk til styrkingar fyrir skel og skráp krabbadýra. Inniheldur einnig hvítlauk (sem inniheldur allicín) og hentar einkar vel þegar dýr eru undir álagi td. í sóttkví og eftir að þau eru færð milli búra. Hvítlaukurinn styrkir ónæmiskerfið og ver fyrir ágangi sníkjudýra. Þótt mörg botndýr séu grænmetis- og þörungaætur þá éta þeir einnig mikið af vatnalífverum til að fá nauðsynleg prótein. Búrlíf tryggir yfirleitt ekki nægt framboð af þörungum til að mæta þessari þörf en samsetning New Life Spectrum Crustacean Formula gerir það hins vegar og svo um munar!

Stærð og lögun: 0,5 mm hægsökkvandi kögglar.
Magn: 50 g.

Innihald: heilfiskur, kornmeti, chlorella grænþörungar, ulva þang, hvítlaukur (5%), spirúlína, ómega-3 fitusýrur, ávextir, grænmeti.  
Samsetning (1 kg): Hráprótín 49%, hráfita 8%, hrátrefjar 4%, aska 10%, raki 9%, betakarótín 16.500 IU, A-vítamín 8000 IU, D-vítamín 2500 IU, E-vítamín 200 IU, D-pantótensýra 9,7 IU, níacín 19,8 mg, fólínsýra 0,7 mg, B1-vítamín (þíamín) 4,2 mg, ríbóflavín 2,7 mg, B6-vítamín (pýrídoxín) 4 mg, bíótín 0,1 mg, E-vítamín, C-vítamín (askorbínsýra) 30 mg, kólín 50 mg, etýlen-díamín tvívetnisjoðíð 50 mg, litarefni 420 mg, önnur snefilefni 75 mg.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg