Cultured Clam – Squamosa S

15.350 kr.

SKU: 11803S Flokkur:

Samlokuskeljar af tegundinni Tridacna squamosa eru falleg viðbót í rólegu kórallabúri. Þessi kallast Fluted Giant Clam og finnst víða í Indlandshafi og S-Kyrrahafi. Hún þekkist á hrjúfri, ílangri skelinni. Möttullinn er nokkuð breiður og getur verið brúnn, fjólublár, grænn eða gulur með rákamynstri.  Hún þarf sterka flúr- eða málmhalógen lýsingu. Hún getur 2-3 faldast að stærð á ári við réttar aðstæður og verður mest um 40 cm og getur lifað 50-100 ár. Hún þarf 400-480 mg/L í kalkmagni, pH 8,1-8,3 og alkalinity 7-9. Hún stundar ljóstillífun (ljóstillífandi þörungar) og síar æti úr vatni þ.a. það þarf helst að fóðra hana eins og harða kóralla. Ræktaðar!
Stærð: small (lítill) - Cultured!
Skilmálar: CITIES skyld
Afgreiðslutími: 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg