Dendropsophus amarilla M
Trúðafroskurinn (Dendropsophus amarilla (minutus)) er snotur en sjaldséður trjáfroskur úr Amasonfrumskóginum í S-Ameríku. Hann er breytilegur á lit en gullskræpóttur. Karldýrið er með ljósgulan kvið en kvendýrið hvítleitan. Froskurinn vill vera í röku umhverfi (60-70% raki) með aðgang að hreinu vatni í grunnri skál. Botnlag má vera mold, gróf en slétt möl, börkur eða mosi. Vill hafa felustaði ss. steina eða viðarbúta og greinar til að klifra í. Þess vegna er gott að búrið sé hátt, enda froskurinn oftast uppi í trjánum. Þetta er auðveldur byrjendafroskur. Nærast á skordýrum, mjölormum, möðkum og þessu líkt. Kvendýrið er nokkuð stærra en karldýrið sem verður um 3 cm langt. Geta orðið nokkuð langlífir í búrum. Best að hafa UV ljós yfir þeim á daginn.
Tegund: Lesser/Yellow Tree Frog M
Stærð: 2 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|