Dendropsophus ebraccatus L
Stundarglasatrjáfroskurinn (Dendropsophus ebraccatus) er snotur lítill trjáfroskur úr frumskógum M- og S-Ameríku. Hann er breytilegur á lit en ljósgulbrúnn með stundarglasamunstri á bakinu. Froskurinn vill vera í röku umhverfi (60-70% raki) með aðgang að hreinu vatni í grunnri skál. Botnlag má vera mold, gróf en slétt möl, börkur eða mosi. Vill hafa felustaði ss. steina eða viðarbúta og greinar til að klifra í. Þess vegna er gott að búrið sé hátt, enda froskurinn oftast uppi í trjánum. Þetta er auðveldur byrjendafroskur. Nærast á skordýrum, mjölormum, möðkum og þessu líkt. Kvendýrið verður um 3,5 cm langt en karldýrið um 2,2 cm langt. Geta orðið nokkuð langlífir í búrum - allt að 10 ára. Best að hafa UV ljós yfir þeim á daginn.
Tegund: Harlequin/Hourglass Tree Frog L
Stærð: 2 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|