13.890 kr.

Cobalt Blue diskusinn (Symphysodon aequifasciata 'Cobalt Blue') er ræktunarafbrigði af diskusum sem koma af Rio Negra og Rio Madiera vatnsvæðinu í Amasonskóginum. Diskusinn jefur verið kallaður konungur ferskvatnsfiskanna, og ber það nafn með rentu. Þótt það sé nokkuð auðvelt að ala önn fyrir þessum fiskum fyrirgefa þeir ekki mistök í vatnsgæðum. Óreyndir ættu því ekki að fjárfesta í þeim. Best er að hafa þá eina sér en þeir geta verið með öðrum rólegum fiskum. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/symphysodon_aequifasciata.html
Afbrigði: Cobalt Blue Discus S
Stærð: 4-5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg