Dyeing Poison Frog ‘Grey Leg’ M
Grápílufroskurinn (Dendrobates tinctorius 'Grey Leg') er bráðfallegur eiturörvafroskur frá S-Súrinam. Eftirsóttur vegna litarins - ljósgrár með svörtum skellum eða freknum. Kvendýrið einokar karldýr, slást innbyrðis um hann. Kvendýrið hrygnar í litlum polli og karldýrið frjóvgar eggin. Um 5-10 afkvæmi fæðast og karldýrið gætir þeirra. Halakörturnar nærast á pöddulífi í pollunum og hverja aðra ef ekkert æti er til staðar. Froskurinn nærist á skordýrum ss. maurum, krybbum, ávaxtaflugum og möðkum. Þurfa að vera í röku búri með mosa og plöntum og aðgengi að hreinu vatni. Þetta eru næturdýr eins og aðrir froskar. Karldýrið verður 5 cm langt en kvendýrið aðeins stærra. Lifa upp undir 10 ár í búrum. Ræktaðir í EU.
Tegund: Grey Leg Dyeing Poison Frog M
Stærð: 2-3 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|