16.790 kr.

SKU: 09225 Flokkur:

Fimmráka snákhöfðinn (Channa quinquefasciata) er fallegur állaga fiskur frá Torsa-fljóti í V-Bengal. Nýuppgötvuð tegund. Þetta er ránfiskur og getur aðeins verið með fiskum sem eru meira en 2/3 af lengd hans td. stærri botíur og barbar. Þolir vel lága súrefnismettun vatns en verður að komast upp á yfirborðið til að anda. Best að hafa góða felustaði og vel lokað búr. Annars verður fiskurinn kominn út á gólf og langa leið um íbuðina. Sýrustig pH 6-8 og hiti 15-28°C. Best að mata á lifandi fóðri. Verður mest um 20 cm langur. Hann er snar í snúningum og hentar eingöngu í vel lokuð búr. Villtir!
Tegund:
Five Banded Snakehead L - Wild.
Stærð: 12-15 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

 

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg