1.890 kr.

SKU: 31973 Flokkur:

Bláeygði regnboginn (Pseudomugil furcatus) er skrautlegur dvergregnbogafiskur frá austurenda Nýju Gíneu. Þetta er fenjamýrarfiskur sem getur orðið býsna laglegur á fengitímanum. Hængurinn er litmeiri og með lengri ugga en hrygnan. Þetta er hópfiskur (fleiri en 6 saman) sem hrygnir auðveldlega í heimabúrum og dafnar best með gróðri. Honum lyndir vel við aðra rólega fiska og er auðveldur byrjunarfiskur. Verður um 5,5 cm langur.
Tegund: Forktail Blue-Eye M
Stærð: 3 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg