Gar Characin S/M
Silfur geddan (Ctenolucius hujeta) er frá S-Ameríku. Þetta er einfari og mesti ránfiskur sem hentar eingöngu með stærri og grimmari fiskum. Getur líka gengið í torfu þar sem allir eru svipað stórir. Hann er allsérstæður með tannfylltan kjaftinn sem er vel til þess fallinn að gripa bráðina á sundi. Hann er afar snar í snúningum og eigandinn þarf því að passa vel hvar hann hefur fingurna. Búrið þarf líka að vera vel lokað. Verður allt að 70 cm langur í náttúrunni (svo er sagt en ekki staðfest) en oftar ekki meira en 25 cm í búrum.
Tegund: Silver Garfish/Hujeta Pike Characin/Slant-nosed Gar/Freshwater Barracuda S/M
Stærð: 8-10 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|