Green Ring-necket Parakeet (Jasmín) – SELD!
Græni hringhálsinn (Psittacula krameri) nýtur mikilla vinsælda, enda litfagur og bráðgreindur miðfugl. Hann hefur heilmikla talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er húsbóndahollur fugl sem þarf að halda í góðri þjálfun. Nokkuð hljóður en getur gefið frá sér hávær köll ef honum er ekki kennt að tala. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja, eggjafóður og auðvitað grænmeti og ávexti. Fæst í nokkrum litarafbrigðum. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/ring-necked_parakeet.html
Hún Jasmín er fallegur fugl. Hún er fædd hérlendis og er rúmlega 8 ára. Það er ekki vitað með vissu hvort hún var handmötuð en sennilega var hún það. Hún er hrifin af konum og stúlkum og gerir flest fyrir þær, en síður hrifinn af karlmönnum. Henni fylgir ágætt hvítt búr.
Stærð: 40 cm.
Lífaldur: 50 ár
Framboð: 8 ára grænn kvenfugl með búri.
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|






