Green Shrimp M
Grænrækjan (Neocaridina davidi 'Green') er skemmtileg rækja í samfélagsbúri. Henni lyndir vel við rólega fiska og fer fremur lítið fyrir henni. Hún er mjög dugleg þörungaæt og passar best í góðu gróðurbúri, margar saman. Hún verður um 2,5 cm löng og er frá Taívan. Hún er alveg meinlaus og nærist einnig á fóðurleifum og töflum.
Tegund: Green Shrimp M
Stærð: 2-2,5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Kjörskilyrði:
PH: 6.4 - 7.6
KH: 0 - 10
GH: 4 - 14
TDS: 80 - 200
Hiti: 18 - 23
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|