Hahn’s Macaw (Kjói) – SELDUR!

80.000 kr.

Hansarinn (Ara nobilis nobilis) nýtur mikilla vinsælda, enda fjörmikill kelari og bráðgreindur í þokkabót. Hann hefur heilmikla talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er ákveðinn miðfugl með mikla leikþörf. Nokkuð hljóður en getur gefið frá sér hávær köll ef honum er ekki kennt að tala. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og auðvitað grænmeti og ávexti. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/hahn_s_macaw.html

Hann Kjói er 5 ára og vel taminn hansari frá Bretlandi. Hann talar reyndar ekki mikið, muldrar mest. Hann kemur til allra, hvort heldur karlmanna eða kvenna. Hann hefur verið DNA-greindur og kyngreiningarskjalið fylgir. Kjói er til sölu vegna yfirgangs frá búrfélaga hans til nokkurra ára - sólpáfa nokkrum af sama kyni. Hann hefur verið í eigu sömu konu frá upphafi.
Stærð: 30 cm.
Lífaldur: 30-40 ár.
Verð: 80.000 kr - SELDUR!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg