Hahn’s Macaw (Sara) – SELD
Hansarinn (Ara nobilis nobilis) nýtur mikilla vinsælda, enda fjörmikill kelari og bráðgreindur í þokkabót. Hann hefur heilmikla talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er ákveðinn miðfugl með mikla leikþörf. Nokkuð hljóður en getur gefið frá sér hávær köll ef honum er ekki kennt að tala. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og auðvitað grænmeti og ávexti. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/hahn_s_macaw.html
Hún Sara er 5 ára og vel taminn hansari frá Bretlandi. Hún kann að tala nokkuð og segir gjarnan "halló" við gesti og gangandi. Hún er mjög kelin og sérlega hrifin af karlmönnum en síður af kvennfólki, einkum ef það er óvant fuglum. Hún vill gjarnan fá að vera með í því sem eigandinn er að gera og situr stillt og prúð á öxl á meðan. Sara er til sölu vegna breyttra fjölskylduaðstæðna og hefur verið í eigu sömu fjölskyldu frá upphafi. Henni fygir hvítt Gabber búr svipað og á myndinni.
Stærð: 30 cm.
Lífaldur: 30-40 ár.
Verð: 80.000 kr með búri - SELD!
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|