11.290 kr.

SKU: 07526 Flokkur:

Gylltu brochisinn (Brochis multiradiatus) er friðsamur og nytsamur fiskur í samfélagsbúri. Hann er stórfrændi grana af Corydoras ættinni og töluvert stærri en þeir. Þeir þekkjast á því að þeir hafa 10 geisla í bakugganum en Corydoras aðeins 7. Þeim lyndir vel við aðra rólega fiska og finnst reyndar voða gaman að vera í hópi. Þessi brochis grani er duglegur við að þrífa upp og éta fóðurleifar á búrbotninum. Hann þekkist á snoppunni löngu. Honum þykir ormar og maðkar lostæti. Hann kemur af Rio Napo vatnsvæðinu í Ekvador og verður um 10 cm langur. Villtir!
Tegund: Hognosed Brochis XL - Wild
Stærð: 8 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni).

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg