17.490 kr.

SKU: ANARF1107L Flokkur:

Riggenbach seffroskurinn (Hyperolius riggenbachi) er fallegur lítill trjáfroskur frá V-Kamerún og A-Nígeríu í Afríku. Þetta er ein af fáum froskategundum þar sem litamunur er á kynjum, og ein af fáum þar sem froskurinn getur skipt um kyn eftir þörfum. Karldýrið er allajafna grænleitt með ljósum hliðarrákum en kvendýrið brúnt með ljósu páramynstri. Froskurinn vill vera í röku umhverfi (60-70% raki) með aðgang að hreinu vatni í grunnri skál. Botnlag má vera mold, gróf en slétt möl, börkur eða mosi. Vill hafa felustaði ss. steina eða viðarbúta og greinar til að klifra í. Þess vegna er gott að búrið sé hátt, enda froskurinn oftast uppi í trjánum. Þetta er auðveldur byrjendafroskur. Nærast á skordýrum, engisprettum, mjölormum, möðkum og þessu líkt. Best að fóðra vel á 2-3 daga fresti, en ungviði þarf að fóðra oftar. Kvendýrið verður um 4 cm langt en karldýrið um 2,7-3 cm langt. Geta orðið nokkuð langlífir.

Tegund: Riggenbach's Reed Frog L
Stærð: 2,5-3 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Umönnunarleiðbeiningar

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg