5.790 kr.

Inirida severum siklíðan (Heros sp. 'Inirida') er falleg siklíða í blönduðu búri og minnir á diskusinn. Finnst á Rio Inirida vatnsvæðinu í Kólombíu. Henni lyndir almennt vel við aðra af sömu tegund, nema á hrygningartímanum þegar hún vill helga sér svæði og verja. Þetta er tignarleg siklíða sem er jafnan dagfarsprúð innan um smærri siklíður. Hún verður allt að 25 cm löng. Hængurinn er litsterkari en hrygnan. Auðveld og harðgerð siklíða. Sýrustig 6-7,2.
Tegund: Inirida Severum S/M
Stærð: 5-6 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Inirida Severum | Ruinemans Aquarium

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg