Jandaya Conure (Garpur) – SELDUR!

100.000 kr.

Jandaya páfinn (Aratinga jandaya) nýtur mikilla vinsælda, enda litfagur og bráðgreindur miðfugl. Hann hefur þokkalega talgetu og mjög auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er húsbóndahollur fugl sem hefur mikla leikþörf og þarf mikið kel. Nokkuð hljóður en getur gefið frá sér hávær köll ef honum leiðist. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, eggjafóður og auðvitað grænmeti og ávexti. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/jandaya_conure.html

Hann Garpur er 17 ára gamall strákur í leit að góðu heimili. Hann er mesti kelirófa en getur látið heyrast í sér til að fá athygli. Hann er mjög vel taminn - kemur á putta og lætur handfjatla sig á alla vegu. Hann Gaspur er fluttur inn frá S-Afriku og hringamerktur. Hann hefur verið á Harrisons þurrfóðri og er til sölu vegna veikinda á heimilinu. Honum fylgir fallegt grænt Nina Playtop búr og leikdót. Mjög kelinn og skemmtilegur fugl!
Stærð: 30 cm.
Lífaldur: 30-40 ár.
Framboð: taminn fullorðinn fugl ásamt góðu búri og leikdóti. - SELDUR!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg