2.090 kr.

SKU: 24361 Flokkur:

Tebera regnboginn (Melanotaenia herbertaxelrodi) er skrautlegur regnbogafiskur frá Tebera-vatni á Papúa Nýju-Gíneu. Þetta er fenjamýrarfiskur sem getur orðið býsna laglegur á fengitímanum. Hængurinn er litmeiri og með lengri ugga en hrygnan. Þetta er hópfiskur sem hrygnir auðveldlega í heimabúrum og dafnar best með gróðri. Fallegt gróðurbúr með 20 regnbogafiskum er ægifögur sjón. Þessum lyndir vel við aðra rólega fiska og er auðveldur byrjunarfiskur. Hængurinn verður 9 cm en hrygnan minni. Kemur úr alkalísku vatni pH 7-8. Þetta er hoppari þ.a. búrið þarf að vera vel lokað.
Tegund: Lake Tebera Rainbowfish S
Stærð: 3-4 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg