Leptopelis boulengeri L
Gabon skógarfroskurinn (Leptopelis boulengeri) er athyglisverður trjáfroskur frá Gabon og nágrenni í V-Afríku. Hann finnst í mýrlendi og láglendishitabeltisskógi. Þetta er auðveldur byrjendafroskur sem þarf hátt búr með góðum klifurgreinum, aðgang að vatni (helst rennandi fossi) og nægt æti. Hann hefur mikla matarlyst og étur mestmegnis skordýr ss. engisprettur, flugur og maðka. Getur fjölgað sér í búrum. Best er að hafa eitt karldýr á mót 2 kvendýrum ef ætlunin er að láta þá tímgast. Gott er að hafa hitamottu undir búrinu og UV-ljós yfir því. Best að hafa lifandi plöntur í burinu til að klifra í. Botnlag má vera rakur barkarspænir með kolum (lykteyðandi) og sphagnum mosa yfir. Úða þarf burið reglulega til að viðhalda rakanum. Kvendyrið verður 6-8 cm langt, karldýrið minna eða um 3,7-4,8 cm. Karldýrið er grænt en kvendýrið brúnskræpótt. Kviður ljósdílóttur.
Tegund: Gabon Forest Tree Frog L
Stærð: 3-4 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|