1.790 kr.

SKU: 29283 Flokkur:

Bintan lakkrísgúraminn (Parosphromenus bintan) er undurfalleg gúramítegund. Hængurinn er spengilegri en hrygnan og litsterkari. Hann er sífellt að gera sig til við hrygnuna og býr oft til flothreiður til að hrygna í. Hann getur verið nokkuð aðgangsharður við hrygnuna. Hentar best í pari eða nokkur pör saman. Má ekki vera nörturum þ.e. fiskum sem gætu bitið í ugga og sporða. Þetta er almennt róleg tegund. Getur gengið í samfélagsbúri með rólegum fiskum. Fer sjaldan upp að yfirborði til að anda, ólíkt flestum öðrum gúramítegundum. Kemur frá Bintan-eyju í Indónesíu og verður aðeins um 3 cm langur. Sýrustig pH 3-6,5, hiti 22-28°C. Vill gróðurmikið búr með ekki of mikilli birtu. Frekar erfið tegund - fyrir lengra komna. Villtir! Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/licorice_gourami.html
Tegund: Bintan Liquorice Gourami M - Wild
Stærð: 2-2,5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

bintan

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg