10.490 kr.

SKU: ANAMF2502L Flokkur:

Norður hlébarðafroskurinn (Lithobates (Rana) pipiens) er nokkuð algengur og snotur froskur sem finnst í norðurhluta Bandaríkjanna. Þetta er miðlungsstór fitfroskur, grænn með brúnum doppum. Snoppan er oddhvöss. Froskurinn vill vera í röku umhverfi (60-70% raki) með aðgang að hreinu vatni og jafnvel helst sundvatni. Botnlag má vera mold, gróf en slétt möl, börkur eða mosi. Vill hafa felustaði ss. steina eða viðarbúta og greinar til hoppa upp í. Lifa upp undir 6 ár og geta náð ágætum stökkhraða. Nærast aðallega á kribbum en einnig mjölormum, möðkum og öðrum skordýrum. Kvendýrið er stærra (11 cm) en karldýrið (5 cm).

Tegund: Northern Leopard Frog L
Stærð: 5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Umönnunarleiðbeiningar.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg